REKO

REKO snýst um að koma á fót milliliðalausum viðskiptum á milli bænda, heimavinnsluaðila og smáframleiðenda annars vegar og neytenda og veitingamanna hins vegar.

Í REKO er verið að nýta nútímatækni (samfélagsmiðilinn Facebook) sem dreifileið fyrir þessa hópa.

Fyrirmyndin kemur frá Finnlandi, en REKO er skammstöfun sem stendur fyrir „vistvænir og heiðarlegir viðskiptahættir“.

Tilgangurinn er að efla nærsamfélagsneyslu, færa smáframleiðendur og neytendur nær hver öðrum, gera matarhandverki og heimavinnslu hærra undir höfði og færa smáframleiðendur ofar í virðiskeðjuna.

Markmiðið er að koma á fót dreifileið sem sparar bæði neytendum og smáframleiðendum tíma, gefur neytendum tækifæri til að kynnast framleiðendunum og þeim að fá bein viðbrögð við vörum sínum.

Sex REKO-hringir hafa verið stofnaðir hér á landi og má finna þá með því að slá orðið „REKO“ inn í leitarglugga á Facebook.
Þegar það er gert koma upp eftirfarandi hópar:

REKO Reykjavík

REKO Vesturland

REKO sunnanverðir Vestfirðir

REKO Norðurland

REKO Austurland

REKO Suðurland

REKO hópar á Íslandi

REKO framleiðendur, stjórnendur og velunnarar á Íslandi

Fyrirkomulagið

Stjórnendur hvers REKO hóps stofna viðburð inn í Facebook hópnum fyrir hverja afhendingu.

Framleiðendur setja inn færslur inn í þá viðburði sem þeir vilja taka þátt í þar sem þeir tilgreina hvað þeir hafi í boði og hvað það kosti.

Undir hverja færslu setja áhugasamir kaupendur inn athugasemd þar sem þeir tilgreina hvað þeir vilji kaupa og hve mikið.

Kaupendur greiða framleiðendunum svo rafrænt fyrir það sem þeir ætla að kaupa; fyrir afhendingardaginn.

Á afhendingardeginum afhenda framleiðendur kaupendum síðan vörurnar milliliðalaust.

Neytandinn er búinn að borga vöruna fyrirfram og aðeins er afhent það magn sem pantað var,
ekki er hægt að breyta pöntun eða kaupa af öðrum á staðnum.

Almenn kynning á REKO
www.mataraudur.is/reko-a-islandi

REKO algengar spurningar og svör
www.mataraudur.is/reko-algengar-spurningar-og-svor-fyrir-framleidendur/